Evrópuferðir er netferðaskrifstofa sem sérhæfir sig í ferðum til og um Evrópu. Félagið hefur tryggt sér hagstæða samninga við nokkrar af stærstu ferðaskrifstofum Evrópu og getur því boðið hótel, bílaleigubíla, rútur, afþreyingu og ferðir til og frá flugvöllum um alla Evrópu.

Félagið er í eigu Travel 2 ehf, kt. 690623-1020, og hefur öll tilskilin leyfi frá Ferðamálastofu og er viðurkennd ferðaskrifstofa TIDS frá alþjóðasamtökum flugfélaga IATA. Travel 2 ehf. á og rekur einnig Ameríkuferdir.is.

Stofnandi og eigandi ferðaskrifstofunnar er Þráinn Vigfússon sem hefur áratugareynslu sem stjórnandi hjá nokkrum af stærstu ferðaþjónustufyrirtækjum landsins þ.á.m. Kynnisferðum, Iceland Travel og Icelandair. Síðustu árin starfaði Þráinn sem framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar VITA.