Sérvalin hótel og flug á hagstæðu verði!

Madeira

Barcelo Funchal Oldtown 5*

Barcelo Funchal Oldtown 5*

Verð frá 169.000 kr.

Barcelo Funchal Oldtown er afskaplega fallegt, glænýtt 5* hótel staðsett í hjarta gamla bæjarins í Funchal. Hótelið er með klassískan lúxusstíl og opnaði í júlí 2023 og hefur hlotið einstaklega góðar umsagnir síðan þá. Staðsetning hótelsins gæti í raun ekki verið betri þar sem hótelið er staðsett við hliðina á aðalgötu Funchal, Avenida do Mar sem er gatan við höfnina með fullt af skemmtilegum veitingastöðum og afþreyingu eins og bátaferðir og Cristiano Ronaldo safnið.

The Vine Hotel 5*

The Vine Hotel 5*

Verð frá 199.000 kr

The Vine Hotel 5* er frábært nýtískulegt hótel sem valið hefur verið eitt af "Europe´s Leading Hotels" er staðsett í miðjum gamla bænum í Funchal þar sem útimatsölustaðir og götulíf er út um allt. Hótelið hentar mjög vel fyrir fólk sem vill vera í miðbænum og er notar minna sundlaugaraðstöðu sem er á stærri hótelum sem staðsett eru við ströndina. Á hótelinu eru einungis 57 herbergi og svítur sem eru öll mjög rúmgóð. Á þaki hótelsins er verönd með heitum potti, sundlaugaraðstöðu og flottum bar.

Royal Savoy 5*

Royal Savoy 5*

Verð frá 249.000 kr.

Beint Flug með PLAY frá Október-Apríl 2025. Royal Savoy er klassískt 5* lúxus hótel með hefðbundnum portúgölskum konungsstíl. Hótelið fær hreint sagt stórkostlegar umsagnir á netinu og er einungis í um 20 mínútna fjarlægð frá flugvellinum. Öll herbergin sem við seljum eru rúmgóð og bjóða upp á svalir ásamt sjávarútsýni. Í 15 mínútna göngufæri er hægt að finna flotta verslunarmiðstöð, MICHELIN veitingarstað, ströndina, Cristiano Ronaldo safnið og margt fleira.

Pestana Royal 5* Allt innifalið

Pestana Royal 5* Allt innifalið

Verð frá 179.000 kr.

Beint Flug með PLAY frá Október-Apríl 2025. Hótelið er í um 20 mínútna fjarlægð frá flugvellinum. Pestana Royal 5* er frábært "all inclusive" hótel sem þýðir að morgunmatur, hádegismatur, kvöldmatur, millimál og innlendir drykkir eru innifaldir. Á hótelinu eru fjórir veitingarstaðir, þrjár sundlaugar, líkamsrækt, SPA, fótboltatennisvöllur, poolborð, minigolf völlur og barnaleikherbergi.

VidaMar Resort 5*

VidaMar Resort 5*

VidaMar Resort 5* er frábært hótel sem hentar bæði fjölskyldum og pörum á öllum aldri mjög vel. Á hótelinu eru 300 herbergi af ýmsum stærðum og gerðum öll björt og rúmgóð. Hótelið skartar meðal annars fimm veitingastöðum, þremur "infinity" sundlaugum og glæsilegri sundlaugaraðstöðu rétt við ströndina með beinan aðgang að sjónum. Ríkulegt morgunverðarhlaðborð og kvöldverðarhlaðborð fylgir öllum bókunum á hótelinu.

Pestana Carlton Hotel 5*

Pestana Carlton Hotel 5*

Verð frá 149.000 kr.

Beint Flug með PLAY frá Október-Apríl 2025. Flogið er til höfuðborgar Madeira, Funchal og er hótelið einungis í um 20 mínútna fjarlægð frá flugvellinum. Pestana Carlton Hotel er frábært hótel á ótrulegu verði miðað við önnur 5* hótel. Hótelið er vel staðsett og er í göngufæri við flotta verslunarmiðstöð, MICHELIN veitingarstað, ströndina, Cristiano Ronaldo safnið o.fl.

Savoy Palace 5*

Savoy Palace 5*

Verð frá 209.000 kr.

Beint Flug með PLAY frá Október-Apríl 2025. Savoy Palace er eitt af allra flottustu hótelum Portúgal og er á lista sem eitt af "Leading Hotels of the World" sem er sambærilegur listi og Michelin Guide en fyrir hótel. Hótelið er einungis í um 20 mínútna fjarlægð frá flugvellinum og er í göngufæri við flotta verslunarmiðstöð, MICHELIN veitingarstað, ströndina, Cristiano Ronaldo safnið og margt fleira.

NEXT - Savoy Signature 4*

NEXT - Savoy Signature 4*

Verð frá 149.000 kr.

Beint Flug með PLAY frá Október-Apríl 2025. NEXT by Savoy Signature er frábært 4* hótel með módern stíl og það er einungis í um 20 mínútna fjarlægð frá flugvellinum. Það fær frábæra dóma á netinu og er tilvalið fyrir pör og hópa. Hótelið býður upp á beinan aðgang að sjónum, saltvatnslaug, spa, skemmtilegan rooftop bar og margt fleira. Innan 15 mínútna göngufæri er hægt að finna flotta verslunarmiðstöð, MICHELIN veitingarstað, ströndina, Cristiano Ronaldo safnið og margt fleira.

Fuerteventura

Bristol Sunset Beach 3* íbúðahótel

Bristol Sunset Beach 3* íbúðahótel

Verð frá 139.000 kr.

Bristol Sunset Beach 3* er frábært íbúðahótel staðsett í skemmtilega bænum Corralejo á norðurströnd Fuerteventura. Íbúðirnar eru vel skipulagðar og snyrtilegar á hagstæðu verði. Hótelið er aðeins í 5 mínútna göngufæri frá ströndinni og nálægt mörgum skemmtilegum veitingarstöðum. Hægt er að fá eins og tveggja svefnherbergja íbúðir.

H10 Ocean Dreams 4* - Aðeins Fullorðnir

H10 Ocean Dreams 4* - Aðeins Fullorðnir

Verð frá 169.000 kr.

H10 Ocean Dreams er 4* hótel sem er eingöngu fyrir fullorðna. Hótelið er staðsett á sérstaklega góðum stað í bænum Corralejo sem er á norðurströnd Fuerteventura. Stemningin á hótelinu er róleg og það býður upp á mjög góða þjónustu, t.d. morgunverð sem er með "A la carte" matseðil og aðgang að spa-inu þeirra fyrir aðeins 5 evrur. Í 3 mínútna göngufjarlægð frá hótelinu er aðalgöngugata Corralejo sem býður upp á urmul af veitingastöðum, börum, búðum o.fl. Hótelið er beint á móti H10 Ocean Suites 4* þannig að það gæti hentað stórfjölskyldum að skipta sér á bæði hótelin.

Sheraton Beach & Spa 5*

Sheraton Beach & Spa 5*

+ Vika 189.000 kr. með morgunverðarhlaðborði

FERÐIR 22 DESEMBER 2024 TIL APRÍL 2025 KOMNAR Í SÖLU ! Flogið er til höfuðborgar Fuerteventura, Puerto del Rosario og er hótelið einungis í um 15 mínútna fjarlægð frá flugvellinum. Sheraton Beach & Golf Spa Resort er glæsilegt 5* hótel sem er staðsett við ströndina. Mjög góð aðstaða er í hótelgarðinum þar sem er frábær sólbaðsaðstaða við ströndina. Á hótelinu eru mjög góðir veitingstaðir sem eru með morgunverðar- og kvöldverðarhlaðborð. Að auki er huggulegir Ítalskur og Asískur veitingastaðir sem eru "A la Carte". Fuerteventura Golf Club er mjög góður og skemmtilegur 18 holu völlur þar sem mörg mót hafa verið haldin.

Elba Sara 4*

Elba Sara 4*

+ Vika 159.000 kr. með hálfu fæði

Beint Flug með PLAY frá Desember-Apríl 2025. Flogið er til höfuðborgar Fuerteventura, Puerto del Rosario og er hótelið einungis í um 15 mínútna fjarlægð frá flugvellinum. Elba Sara Beach & Golf Resort er glæsilegt 4* hótel sem er við ströndina. Hótelið er mjög gott og fær frábæra dóma á Tripadvisor og skartar góðum veitingastöðum og sólbaðsaðstöðu þannig að segja má að allt sé til alls þar og svo er örstutt á ströndina. Einnig er hægt að fá golfpakka á þessu hóteli þar sem hótelið er staðsett við golfvöll.

H10 Ocean Suites 4* Fjölskyldur

H10 Ocean Suites 4* Fjölskyldur

Verð frá 169.000 kr.

Beint flug með PLAY til Fuerteventura frá 22. des til apríl. H10 Ocean Suites 4* er frábært fjölskylduvænt hótel sem er staðsett á norðurströnd Fuerteventura í skemmtilegum bæ sem heitir Corralejo. Það tekur um 35mínútur að keyra frá flugvellinum á hótelið. Í 10 mínútna göngufjarlægð er að finna vatsnrennibrautagarð, minigolf völl, verslunarmiðstöð, ströndina og margt fleira. Herbergin eru öll 35fm2 junior svítur eins og nafnið gefur til kynna og henta 3-4 manna fjölskyldum vel.

Tenerife

Wyndham Residence 4* - Íbúðahótel

Wyndham Residence 4* - Íbúðahótel

Verð frá 149.000 kr.

Wyndham Residence Golf del Sur er mjög gott 4* íbúðahótel sem er staðsett á miðju Golf del Sur svæðinu og hefur fengið frábæra dóma. Það er mun rólegra á því svæði heldur en á Americas en allt til alls og frábært að vera með börn þarna. Einnig er þetta frábær kostur ef þið eruð á bílaleigubíl og viljið keyra um eyjuna en nóg er af gjaldfrjálsum bílastæðum beint fyrir utan íbúðirnar. Íbúðirnar eru mjög rúmgóðar og vel útbúnar og allt til alls til að njóta góða veðrisins og njóta. Þetta eru íbúðir sem við getum svo sannanlega mælt með.

H10 Conquistador 4*

H10 Conquistador 4*

Verð frá 209.000 kr.

H10 Conquistador er frábært 4* hótel sem er staðsett á besta stað á Amerísku ströndinni. Það hafa eflaust margir gengið framhjá þessu hóteli ef þeir hafa komið áður á Amerísku, en núna er tækifæri til þess að panta sér ferð þangað. Hótelið er alveg við ströndina og mjög gaman að ganga bæði með ströndinni í áttina að Los Cristianos og svo í vestur Adeje ströndina. Hótelið er með 4 flotta veitingastaði, þar á meðal japanskan, ítalskan og steikhús. Öll þjónustan á hótelinu er til fyrirmyndar eins og þekkist á öllum hótelunum í H10 keðjunni. Hótelgarðurinn er stór með þremur sundlaugum og er aðstaðan mjög þægileg.

H10 Las Palmeras 4*

H10 Las Palmeras 4*

Verð frá 189.000 kr.

H10 Las Palmeras er mjög gott 4* hótel sem er staðsett á besta stað á Amerísku ströndinni. Hótelið er alveg við ströndina og mjög gaman að ganga bæði með ströndinni í áttina að Los Cristianos og svo í vestur Adeje ströndina. Mjög góðir veitingastaðir eru á hótelinu og öll þjónusta til fyrirmyndar. Hótelgarðurinn er stór og þægilegur.

Ramada Costa Adeje 3* - Íbúðahótel

Ramada Costa Adeje 3* - Íbúðahótel

Verð frá 139.000 kr.

Þetta skemmtilega íbúðahótel er staðsett uppi í hlíðunum á Costa Adeje með frábært útsýni yfir bæinn. Mjög hagstæð verð fyrir einstaklinga í herbergjum, hentar hópum og fjölskyldum alveg sérstaklega vel. Hótelið býður upp á snyrtilegar eins og tveggja svefnherbergja íbúðir sem eru þægilega hannaðar. Allar íbúðirnar eru með sér verönd, fullbúið eldhús, borðstofuborð, sjónvarpi, sófa og allt sem að manni vantar í fríið. Innan 15 mínútna göngufæri er að finna verslunarmiðstöðina X-Sur Centro Comercial, góðan supermarket, veitinga- og skyndibitastaði o.fl.

Gran Canaria

Kumara by Lopesan 4*

Kumara by Lopesan 4*

Verð frá 189.000 kr.

Kumara Serenoa by Lopesan er 4* 144 herbergja hótel sem staðsett er á mörkum sandöldunum á Maspalomas og Maspalomas golfvellinum. Aðeins í 5 mínútna akstursfjarlægð frá hótelinu er hin glæsilega Meloneras strönd þar sem mikið er af flottum búðum og veitingastöðum.

Lopesan Baobab Resort 5*

Lopesan Baobab Resort 5*

Verð frá 219.000 kr.

Lopesan Baobab hótelið er 5* lúxus hótel með Afrísku þema á hinni glæsilegu Meloneras ströndinni á Gran Canaria. Hótelið var allt tekið í gegn á árinu 2022 og er hið glæsilegasta alveg við Maspalomas sandöldurnar.

Lopesan C. Meloneras 5*

Lopesan C. Meloneras 5*

Verð frá 239.000 kr.

Lopesan Costa Meloneras hótelið er 5* lúxus hótel á hinni glæsilegu Meloneras ströndinni á Gran Canaria. Hótelið var allt tekið í gegn á árinu 2022 og er hið glæsilegasta alveg við Maspalomas sandöldurnar.