17-24. nóvember Kvennaferð - Golf, spa og heilsa á Lopesan Baobab Resort 5* - Gran Canaria

Flug, 7 nætur, hálft fæði, 4 golfhringir á 3 golfvöllum, ferðir, Spa ofl. á 379.000 kr.

Um ferðina

NÝ & BETRI – Lopesan Baobab, GRAN CANARIA

7 daga konunámskeið | Vellíðan • styrkur • golf • samvera

Fararstjóri í þessari ferð er Bjargey Aðalsteinsdóttir er íþróttafræðingur (B.Ed., M.A.), jógakennari með diplómu í núvitund og markþjálfun (Executive Coaching). Hún hefur yfir 40 ára reynslu af því að leiða hópa, kenna og hvetja fólk til betri heilsu og vellíðunar. Bjargey hefur meðal annars rekið líkamsræktarstöðvarnar Þokkabót og Nordica Spa, haldið vinsæl „Ný og betri“ námskeið og skipulagt ferðir erlendis fyrir konur. Í dag starfar hún einnig sem verkefnastjóri Heilsueflandi grunnskóla í Valhúsaskóla.

Bjargey er hlý, lífsglöð og hefur einstakt lag á að skapa góða stemningu í hópum. Í ferðinni verður hún með létta heilsufræðslu og hreyfingu sem gefur þátttakendum innblástur til að hugsa vel um sig – svo þær komi heim nýjar og betri. Hún er einnig áhugasamur golfari með undir 20 í forgjöf og hefur verið í keppnissveitum Nesklúbbsins. Í ferðinni mun hún skipuleggja skemmtileg golfmót fyrir þær sem vilja njóta golfsins í góðum félagsskap.

Gefðu sjálfri þér viku í sól og hlýju þar sem þú styrkist líkamlega og andlega, nýtur golfleiksins og slakar á í góðum félagsskap.
Markmiðið er einfalt: að þú komir heim ný & betri.

Flugupplýsingar

Brottför:

Flug: Icelandair FI 966 KEF–LPA

17.11.26, kl. 09:55

Koma: 15:20

Flug: Icelandair FI 967 LPA-KEF

24.11.26: kl. 16:30-22:00

--------------------------------------------------

GISTINGIN

  • Hotel Lopesan Baobab er glæsilegt 5 stjörnu hótel í Meloneras á suðurhluta Gran Canaria.
  • Hótelið er þekkt fyrir fallega afríska hönnun, gróskumikla garða og margar sundlaugar sem skapa einstaka stemningu.
  • Staðsett í göngufæri við Maspalomas sandöldurnar, ströndina og Meloneras göngugötuna.
  • Rúmgóð og þægileg herbergi með svölum eða verönd.
  • Fjölbreytt úrval veitingastaða og góð þjónusta.
  • Frábær staður til að njóta sólar, slökunar og lífsins á Gran Canaria.

--------------------------------------------------

UM NÁMSKEIÐIÐ

Ný & betri er námskeið fyrir konur á öllum aldri

• regluleg hreyfing | gönguferðir

• styrkja líkama, jafnvægi og sjálfstraust | teygjur, fyrirlestrar

• njóta golfleiks í góðum félagsskap á Anfi, Meloneras og Maspalomas golvöllunum.

• gefa sér tíma til að endurhlaða batteríin

Ferðin er leidd af Bjargeyju Aðalsteinsdóttur, íþróttafræðingi en hún hefur áralanga reynslu af þjálfun og vellíðunarferðum.

--------------------------------------------------

FYRIRLESTRAR

• Hreyfing, jákvæðni og styrkur kvenna

• Ný & betri til framtíðar – hvernig þú heldur áfram

--------------------------------------------------

GOLFIÐ

  • 4 hringir
  • Anfi Golf, Meloneras Golf og Maspalomas Golf
  • Skemmtilegt mót með veglegum vinningum.

--------------------------------------------------

GÖNGUFERÐIR

• Dagur 4 – ganga í fallegu umhverfi

• Dagur 8 – morgunganga fyrir heimferð

--------------------------------------------------

MATUR

Hálft fæði (morgun- og kvöldverður)

• 4 margir veitingastaðir á Baobab hótelinu

• Einnig val um að borða kvöldverð á tveimur öðru Lopesan hótelum sem eru í göngufæri sem eru Costa Meloneras Hotel og Villa del Conde Hotel.

--------------------------------------------------

DAGSKRÁ – YFIRLIT

Dagur 1 - ferðadagur

Koma kl. 18:30 – Kynning og kvöldverður

Dagur 2

Morgunmatur, golf og . kl. 17 létt hreyfing og teygjur. Fyrirlestur.

Hreyfing - fyrirlestur – Golf eftir hádegi (upphitunarhringur)

Dagur 3

Létt ganga og hreyfi æfingar fyrir morgunmat. Golf kl. 11:00 – Fyrirlestur 2

Dagur 4

Ganga fyrir morgunmat, spa upplifun/ritual at Costa Meloneras (hámark 4 kl.st) sundlaugin og slökun eftir hádegi.

Kvöldmatur saman fyrir þær sem vilja

Dagur 5

– Golf kl. 10:30 og frjáls tími eftir það.

Dagur 6

Frjáls dagur en sameiginlegur kvöldverður.

Dagur 7

Hreyfing – Golfmót kl. 11:00 og verðlaunaafhending í golfskála

Dagur 8 - ferðadagur

Morgunganga –teygjur, Heimferð

--------------------------------------------------

* dagskráin getur breyst

Lopesan Baobab Resort 5★

Maspalomas, Gran Canaria

🏖️ Í boði 7, 10, 11 eða 14 nætur frá október 2026 til apríl 2027

Lopesan Baobab Resort er einstakt 5★ lúxushótel í hjarta Meloneras, hannað með innblæstri frá afrískri menningu og náttúru. Hótelið býður upp á stórbrotna byggingarlist, gróskumikla garða, vatnsfalla og ævintýralega sundlaugarsvæði – sannkölluð paradís fyrir pör og fjölskyldur sem leita að ógleymanlegri upplifun í sólríku umhverfi Gran Canaria.

Andrúmsloftið er bæði afslappað og spennandi, þar sem framúrskarandi þjónusta, fjölbreytt afþreying og hágæða aðbúnaður tryggja að dvölin verði alveg einstök.

🏨 Herbergi

Lopesan Baobab Resort státar af rúmgóðum og smekklega innréttuðum herbergjum og svítum, þar sem nútímalegur lúxus og afrísk hönnun mætast.

  • 677 herbergi og svítur
  • Sérsvölur eða verönd með útsýni yfir garð, sundlaug eða haf
  • Hlýir jarðtónar, náttúruleg efni og stílhrein innrétting
  • Loftkæling, minibar, kaffivél og ókeypis Wi-Fi
  • Baðherbergi með sturtu eða baðkari
  • Fjölskylduherbergi og svítur með aðskildum svefnrýmum
  • Herbergisþjónusta og dagleg þrif í hæsta gæðaflokki

🍽️ Veitingastaðir og barir

Hótelið býður upp á fjölbreytt úrval veitingastaða þar sem gestir geta notið matargerðar víðsvegar úr heiminum:

  • Baobab Restaurant – aðalhlaðborð með fjölbreyttum réttum og lifandi eldamennsku
  • Marula Restaurant – hlaðborð með alþjóðlegum og kanarískum réttum
  • Akara Restaurant – fínni veitingastaður með afrískri innblástursmatargerð
  • Mosaic Restaurant – nútímaleg matargerð í glæsilegu umhverfi
  • Pool Bars – léttir réttir, ískaldir drykkir og kokteilar í sólinni
  • Lobby Bar & Sports Bar – drykkir, tónlist og afslappað kvöldandrúmsloft

💆 Aðstaða og afþreying

  • Margvísleg sundlaugarsvæði – m.a. lónlaug, barnalaug, sandlaug og upphituð laug
  • Barnaklúbbur, leiksvæði og fjölskyldudagskrá
  • Kvöldskemmtanir og lifandi tónlist
  • Líkamsræktaraðstaða og afþreying fyrir alla aldurshópa
  • Aðgangur að glæsilegum heilsulindum Lopesan-hótelanna í grenndinni
  • Stutt í Meloneras Golf og Maspalomas Golf

Golfvellirnir – Þrjár ólíkar upplifanir

Meloneras Golf (5 mín akstur)

⭐ Einkunn: 8,6/10 (Leadingcourses)
18 holur – Par 71 – glæsilegur sjávarvöllur með pálmatrjám og fagurri hönnun
Gestir Lopesan-hótelanna fá forgang og sértilboð á green fee

Maspalomas Golf (5 mín akstur)

⭐ Einkunn: 8,0/10
18 holur – Par 73 – breiðar brautir og afslappað andrúmsloft við sandöldurnar
Fullkominn fyrir bæði byrjendur og lengra komna kylfinga

Anfi Tauro Golf (25 mín akstur)

⭐ Einkunn: 9,0/10 – meðal hæst metnu golfvalla Spánar
18 holur – Par 72 – stórbrotið útsýni, klettalandslag og krefjandi brautir

💡 Af hverju velja Lopesan Baobab Resort?

  • Einstakt 5★ lúxushótel með afrískri hönnun og stórkostlegu umhverfi
  • Frábær sundlaugaraðstaða og gróskumiklir garðar
  • Hágæða veitingastaðir og fjölbreyttur matur
  • Fullkomið fyrir bæði pör og fjölskyldur
  • Aðgangur að golfvöllum, spa og afþreyingu
  • Framúrskarandi þjónusta og ógleymanleg upplifun allt árið

📍 Staðsetning

  • Í Meloneras, Maspalomas á suðurhluta Gran Canaria
  • Aðeins nokkurra mínútna göngufjarlægð frá Meloneras-ströndinni ogvitanum í Maspalomas
  • 25 mínútur frá Gran Canaria-flugvelli (LPA)
  • Nálægt golfvöllum, verslunum, veitingastöðum og strandpromenödu
  • Friðsæl og falleg staðsetning með suðrænum blæ

Innifalið

+ Flug með Icelandair til og frá Gran Canaria flugvelli með sköttum

+ 23 kg taska, 10 kg handtaska og 23 kg golfsett

+ Gisting í 7 nætur í double/twin herbergi á hinu glæsilega Lopesan Baobab Resort 5*

+ Hálft fæði innifalið - Kvöldverður á þremur mismunandi Lopesan hótelum í göngufæri

+ Íslensk fararstjórn, fyrirlestra, hreyfingu, teygjur og slökun

+ 4 hringir á Meloneras, Maspalomas og Anfi golfvöllunum

+ Skutl til og frá golfvöllunum er á ákveðnum tímum

+ Ferðir til og frá flugvelli innifaldar

Ekki innifalið

- Golfbílar eru ekki innifaldir en þeir eru pantaðir og greiddir á staðnum og kosta 25 Evrur á mann miðað við tvo á bíl. Ekki er hægt að panta þá fyrirfram þar sem það er til nóg af golfbílum á öllum völlunum.

- Aukagjald fyrir að vera einn í tveggja manna herbergi: 60.000 kr.

Hafa samband

Brottfarir

Verð á mann

379.000

kr.

17. nóvember 2026

24. nóvember 2026