Saga og tíska Mílanó

4 nætur frá 159.000 kr.

Brottför

Mílanó, Ítalía

Heimkoma

Mílanó, Ítalía

Um ferðina

BEINT FLUG ICELANDAIR MAÍ-OKT 24

Flogið er með Icelandair á fimmtudagsmorgni og gist í Mílanó í 4 nætur á góðu 4* hóteli og flogið heim aftur með Icelandair seinnipart mánudags.

Í þessari ferð upplifið þið það helsta sem Mílanó hefur upp á að bjóða en þar er af nógu að taka. Gist er á 4* hótel alveg í miðbænum og farið verður í 4 tíma gönguferð um allt það helsta í Mílanó með sérfróðum enskumælandi leiðsögumanni sem þekkir Mílanó eins og lófann á sér.

Ferðin hentar stórum sem smáum hópum þannig að endilega sendið okkur fyrirspurn hér að neðan eða hafið samband við okkur á info@evropuferdir.is og við gerum ykkur tilboð í ferðina..

Innifalið

+ Beint flug með Icelandair til og frá Mílanó með sköttum

+ Ferðir til og frá flugvelli í rútu

+ Gisting í tveggja manna herbergjum á Hotel NH Milano Touring 4* með morgunmat

+ 4 kl.st skoðunarferð á ensku um helstu staði Mílanó

+ Aðgangur að Dómkirkju Mílanó

+ Aðgangur að Scala Museum

Ferðaskipulag

Dagur 1

KEFLAVÍK - MÍLANÓ

Flogið er í beinu flugi Icelandair kl. 8:30 á fimmtudagsmorgni og lent í Mílanó kl. 14:45. Keyrt er í rútu inn í miðbæ Mílanó þar sem hótelið er staðsett.

Dagur 2

SKOÐUNARFERÐ UM MÍLANÓ

Farið verður í gönguferð með enskumælandi leiðsögumanni sem þekkir Mílanó út og inn. Farið er um allt það helsta sem Mílanó hefur upp á að bjóða og tekur ferðin um 4 kl.st. Verður m.a. farið í Dómkirkjuna í Mílanó sem er hreint út sagt stórkostleg. Einnig verður farið í safnið á Scala óperuhúsinu og er aðgangur innifalinn bæði á Scala og Dómkirkjuna.

Dagur 3

MÍLANÓ - FRJÁLS DAGUR

Gaman er að rölta um Mílanó versla, fara á söfn eða kaffihús, veitingastaði ofl.

Dagur 4

MÍLANÓ - FRJÁLS DAGUR

Gaman er að rölta um Mílanó versla, fara á söfn eða kaffihús, veitingastaði ofl.

Dagur 5

MÍLANÓ - KEFLAVÍK

Flogið er frá Mílanó í beinu flugi Icelandair kl. 15:45 og lent í Keflavík um kl. 18:00.

Hafa samband