Hápunktar Rómar

4 nætur frá 159.000 kr

Brottför

Róm, Ítalía

Heimkoma

Róm, Ítalía

Um ferðina

BEINT FLUG ICELANDAIR ALLT ÁRIÐ

Flogið er með Icelandair á miðvikudagsmorgni og gist í Róm í 4 nætur á góðu 4* hóteli og flogið heim aftur með Icelandair seinnipart sunnudags.

Í þessari ferð upplifið þið það helsta sem Róm hefur upp á að bjóða en þar er af nógu að taka. Gist er á 4* hótel í miðbænum og farið verður í 6 tíma ferð um allt það helsta í Róm með sérfróðum enskumælandi leiðsögumanni sem þekkir Róm eins og lófann á sér.

Ferðin hentar stórum sem smáum hópum þannig að endilega sendið okkur fyrirspurn hér að neðan eða hafið samband við okkur á info@evropuferdir.is og við gerum ykkur tilboð í ferðina..

Innifalið

+ Beint flug með Icelandair til og frá Róm með sköttum

+ Ferðir til og frá flugvelli í rútu

+ Enskumælandi skoðunarferð um Róm (6 kl.st.)

+ 48 tíma samgöngukort sem gildir í allar neðanjarðarlestir og strætó í Róm

+ Gisting í tveggja manna herbergjum á Hotel Milton Róm 4* með morgunmat.

Ekki innifalið

+ Ferðir til og frá flugvelli

Ferðaskipulag

Dagur 1

KEFLAVÍK - RÓM

Flogið er í beinu flugi Icelandair kl. 8:30 og lent í Róm um kl. 15:00. Keyrt er í rútu á hótelið sem er alveg í miðbæ Rómar. Frjáls dagur eftir það þar sem gaman er að rölta um miðbæ Rómar og fara inn verslanir, kaffihús og veitingahús sem eru á hverju strái. Miðbærinn er merkilega lítill og hægt að fara flest fótgangandi.

Dagur 2

SKOÐUNARFERÐ UM RÓM

Farið verður í gönguferð með enskumælandi leiðsögumanni sem þekkir Róm út og inn. Farið er um allt það helsta sem Róm hefur upp á að bjóða og tekur ferðin um 6 kl.st.

Dagur 3

FRJÁLS DAGUR Í RÓM

Gaman er að rölta um Róm versla, fara á söfn eða kaffihús, veitingastaði ofl.

Dagur 4

FRJÁLS DAGUR Í RÓM

Gaman er að rölta um Róm versla, fara á söfn eða kaffihús, veitingastaði ofl.

Dagur 5

RÓM - KEFLAVÍK

Flogið er frá Róm í beinu flugi Icelandair kl. 16:00 og lent í Keflavík um kl. 18:50.

Hafa samband