Pör
Hópar
Bogogno Golf Resort 4*
+ 5 golfhringir með bíl á tveimur völlum frá 199.000 kr án flugs
Um ferðina
Bogogno Golf Resort 4*
Mílanó, Ítalía

🏖️ Yfirlit
Frábær golfstaður í Piemonte – aðeins um 30 mínútur frá Malpensa flugvelli
Bogogno Golf Resort er glæsilegur golfáfangastaður í Piemonte á Norður-Ítalíu, skammt frá Lago Maggiore og aðeins um 30 mínútna akstur frá Malpensa-flugvelli í Mílanó.
Á resortinu eru tveir 18 holu golfvellir, Bonora og Conte, ásamt 4 stjörnu hóteli, veitingastað, bar, sundlaug, heilsulind og góðri æfingaaðstöðu.
Bogogno hentar einstaklega vel fyrir golfhópa sem vilja sameina gott golf, ítalskan mat og afslappaða dvöl án þess að þurfa langar rútuferðir á hverjum degi.

Hótelið stendur við golfvellina og því er stutt í alla helstu þjónustu resortins.
Herbergin eru rúmgóð og nútímaleg og flest með útsýni yfir golfvellina eða fallegt landslag Piemonte.

Á hótelinu er meðal annars:
• Veitingastaður
• Bar og setustofa
• Útisundlaug
• Heilsulind og líkamsrækt
• Tennisvellir
• Golfverslun
• Æfingasvæði
• Driving range
• Putting- og chipping-svæði
Golfsett er hægt að geyma á golfsvæðinu meðan á dvöl stendur.

🏨 Herbergi
- 80 herbergi og svítur
- 16 Comfort 28 fm
- 28 Deluxe 33 fm
- 27 Premium 38-45 fm
- 9 Svítur 70 fm
- Svalir eða verönd með útsýni yfir golfvelli, sundlaug eða náttúruna í kring
- Rúmgóð baðherbergi með sturtu og lúxusþægindum
- Family Rooms og Grand Club Suites fyrir fjölskyldur og þá sem vilja aukin þægindi
- Loftkæling, minibar, kaffivél og hraðvirkt Wi-Fi
- Nútímaleg og björt hönnun með hlýlegu Miðjarðarhafsyfirbragði

🍽️ Veitingastaðir og barir

- Á Bogogno Golf Resort sjálfu er í raun einn aðalveitingastaður, en hann starfar bæði sem Ristorante og Bistrot. Hann er í klúbbhúsinu og tekur allt að 230 manns inni og 270 á veröndinni, þannig að hann hentar mjög vel fyrir stóra Evrópuferðir-hópa. Matargerðin byggir á ítalskri/Miðjarðarhafsmatargerð en einnig alþjóðlegum réttum og þar er góð vínlist.
- Síðan er Bar/Buvette í klúbbhúsinu yfir daginn með buffet/léttari veitingum og American Bar á kvöldin, með verönd og útsýni yfir golfvellina og Monte Rosa. Á Bonora-vellinum er einnig Buvette Bonora við 9./10. holu, en hún er aðallega opin á keppnisdögum.

💆 Aðstaða og afþreying
- Stór útisundlaug ásamt infinity pool fyrir fullorðna
- Glæsileg spa- og wellness-aðstaða með sauna, gufu, hydrotherapy og fjölbreyttum meðferðum
- Fullbúin líkamsrækt sem er opin allan sólarhringinn
- Tennisvellir og padelvellir

⛳ GOLFVELLIRNIR

BONORA COURSE
Bonora er 18 holu championship-völlur hannaður af Robert von Hagge.
Völlurinn liggur um fallegt og fjölbreytt landslag með hæðarmun, skóglendi og vatnstorfærum. Hann reynir á nákvæmni en býður jafnframt upp á margar skemmtilegar holur þar sem kylfingar geta tekið áhættu.
Bonora er almennt talinn krefjandi og mjög skemmtilegur völlur og hentar vel kylfingum með mismunandi forgjöf.
18 holur – Par 72

CONTE COURSE
Conte er einnig 18 holu völlur eftir Robert von Hagge og er töluvert ólíkur Bonora.
Hann er opnari og flatari með breiðari brautum, stórum flötum og fallegu útsýni yfir Monte Rosa og Alpana þegar skyggni er gott.
Conte er þægilegur gönguvöllur og mjög góður mótvægisvöllur við Bonora.
18 holur – Par 72
CASTELCONTURBIA GOLF CLUB
Í aðeins um 10–15 mínútna akstursfjarlægð frá Bogogno er hinn þekkti Castelconturbia Golf Club.
Castelconturbia er einn virtasti golfstaður Norður-Ítalíu og býður upp á 27 holur. Völlurinn var hannaður af Robert Trent Jones Sr. og liggur í fallegu skóglendi með útsýni í átt að Monte Rosa.
Þar fór Italian Open fram 1991 og 1998, Challenge Tour 2020 og vallarmetið, 66 högg, er skráð á José María Olazábal og Costantino Rocca.
Það er möguleiki á að taka 1-2 hringi á þessum velli inn í pakkanum.

💡 Af hverju velja Bogogno?
- Tveir flottir golfvellir alveg við hótelið
- 27 holu golfvöllur 10-15 mín frá hótelinu
- Einungis 30 mín frá flugvellinum þar sem Icelandair flýgur til
- Piemonte er eitt þekktasta matar- og vínhérað Ítalíu.
- Vínsmökkunarferðir í boði
- Flott SPA og nudd þar sem hægt er að fá fjölbreyttar meðferðir
- Stórt klúbbhús, sundlaug, Pro Shop og líkamsrækt
- Stór veitingastaður og vínkjallari með úrvalsvínum
📍 Staðsetning
- Í Piemonte í noður-Ítalíu milli Mílanó og Lago Maggiore
- Um 30 mín frá Melpensa flugvelli
- Nálægt Cartagena, Mar Menor og Calblanque-náttúrugarðinum
Innifalið
+ Gisting í tveggja manna í 28 fm Comfort herbergi
- Aukagjald fyrir 7 nætur á mann í 33 fm Deluxe herbergi: 20.000 kr
- Aukagjald fyrir 7 nætur á mann í 40 fm Premium herbergi: 30.000 kr
- Aukagjald fyrir 7 nætur á mann í 70 fm Svítu: 60.000 kr
+ Morgunverðarhlaðborð innifalið
+ 5 golfhringir á Bonora og Conte golfvöllunum
+ Golfbíll innifalinn (miðað við tvo á bíl)
+ Aðgangur að heilsulind og líkamsrækt
+ Kvöldverður í viku kostar 50.000 kr aukalega
Ekki innifalið
- Flug er ekki innifalið en við getum bókað hjá Icelandair ef það hentar
- Ferðir til og frá flugvelli eru ekki innifaldar en við gerum föst verðtilboð fyrir pör og hópa.
Hafa samband
Brottfarir
Verð á mann
225.000
kr.
Mars 27 - 7 nætur og 5 hringir með bíl án flugs
Verð á mann
249.000
kr.
Apríl 27 - 7 nætur og 5 hringir með bíl án flugs
Verð á mann
249.000
kr.
Maí 27 - 7 nætur og 5 hringir með bíl án flugs
Verð á mann
249.000
kr.
Júní 27 - 7 nætur og 5 hringir með bíl án flugs
Verð á mann
189.000
kr.
Júlí 27 - 7 nætur og 5 hringir með bíl án flugs
Verð á mann
189.000
kr.
Ágúst 27 - 7 nætur og 5 hringir með bíl án flugs
Verð á mann
249.000
kr.
September 27 - 7 nætur og 5 hringir með bíl án flugs
Verð á mann
249.000
kr.
Október 27 - 7 nætur og 5 hringir með bíl án flugs
Verð á mann
199.000
kr.
Nóvember 27 - 7 nætur og 5 hringir með bíl án flugs