Villa Padierna 5*

Ótakmarkað golf frá 359.000 kr.

Brottför

Malaga, Spánn

Heimkoma

Malaga, Spánn

Um ferðina

Hótel Villa Padierna er staðsett í miðju Flamingos golfvallarins og er fullkomlega staðsett fyrir sól, slökun og ró. Um klukkustundar akstur er frá flugvellinum í Malaga til svæðisins. Við bjóðum upp á lúxuspakka á Hotel Villa Padierna sem er eins og Toskana-höll sem breytt var í lúxushótel, umkringd þremur golfvöllum þar sem þið getið notið bestu heilsulindarinnar, golfsins og spænskrar matargerðar.

Golfvellirnir eru þrír þ.e. Flamingo, Alferini og Tramores sem er par 63. Allir mjög flottir vellir sem hafa fengið góða dóma.

Verð frá kr. 359.000 á mann miðað við tvo í herbergi.

Endilega sendið okkur skilaboð ef lengd ferðar eða tímasetningarnar henta ekki og við getum gert föst tilboð í allar stærðir af hópum.

Vinsamlegast fyllið út formið hér að neðan og gerum okkar allra besta til að finna drauma golfferðina !

Innifalið

+ Flug með PLAY til og frá Malaga með sköttum

+ 20 kg taska og 23 kg golfsett

+ Gisting í 7 nætur í double/twin herbergi

+ Morgunmatur alla dagana

+ Ótakmarkað golf á Flamingos, Alferini og Tramores golfvöllunum

Ekki innifalið

+ Akstur til og frá flugvelli

+ Fararstjórn

+ Bjóðum upp á akstur til og frá flugvelli fyrir einstaklinga og allar stærðir af hópum. Einnig getum við boðið upp á bílaleigubíl af öllum stærðum og gerðum.

Ferðaskipulag

Dagur 1

KEFLAVÍK - MALAGA

Flogið er í beinu flugi PLAY til Malaga. Flogið er frá Keflavík kl. 10:00 og lent í Malaga um kl. 16:40 að staðartíma.

Dagar 2 til 7

GOLF, MATUR, SLÖKUN OG DEKUR

Yndislegt að eyða viku í frábæru loftslagi. Gaman er að keyra og skoða sig um og prófa aðra golfvelli eða bara skoða allt það sem Portúgal hefur upp á að bjóða og njóta lífisins !

Dagur 8

MALAGA - KEFLAVÍK

Eftir frábæra viku í golfparadísinni Costa del Golf er haldið heim á leið. Flogið er í beinu flugi PLAY frá Malaga kl. 17:40 og lent í Keflavík um kl. 20:30.

Hafa samband

Brottfarir

Verð á mann

359.000

kr.

5. október 2024

12. október 2024

Verð á mann

359.000

kr.

12. október 2024

19. október 2024

Verð á mann

359.000

kr.

19. október 2024

26. október 2024