Praia D'EI Rey 5*

+ 5 golfhringir frá 249.000 kr.

Brottför

Lissabon, Portúgal

Heimkoma

Lissabon, Portúgal

Um ferðina

Í um klukkustundar akstursfjarlægðar frá Lissabon er hið frábæra golfsvæði Praia DEI Rey sem er mjög vinsælt sérstaklega meðal norðurlandabúa. Strandarvöllurinn Praia Del Rey er margverðlaunaður en svæðið fékk aukna vikt þegar hinn nýji völlur West Cliffs var opnaður á árinu 2017 ásamt glæsilegu klúbbhúsi.

Marriott hótelið er nýuppgert glæsilegt hótel með mörgum veitingastöðum og frábæru útsýni yfir atlantshafið. Herbergin eru stór og rúmin sérstaklega þægileg. Á hótelinu eru einnig SPA og flott útisvæði með bekkjum og sundlaugum.

Við getum svo sannarlega mælt með þessu glæsilega hóteli ásamt tveimur af bestu golfvöllum Portúgal á frábæru verði.

Verð frá kr. 239.000 á mann miðað við tvo í herbergi.

Endilega sendið okkur skilaboð ef lengd ferðar eða tímasetningarnar henta ekki og við getum gert föst tilboð í allar stærðir af hópum.

Vinsamlegast fyllið út formið hér að neðan og gerum okkar allra besta til að finna drauma golfferðina !

Innifalið

+ Flug með PLAY til og frá Lissabon með sköttum

+ 20 kg taska , 10 kg handtaska og 23 kg golfsett

+ Gisting í 7 nætur í double/twin herbergi

+ Morgunmatur alla dagana

+ 5 hringir á Praia DEI Rey og West Cliffs

+ 9 holu aukagolf bókað sama dag ef laust er á völlunum

+ Flutningur til og frá hóteli á golfvellina

+ Aðgangur að líkamsrækt, jacuzzi, Tyrknesku baði og sundlaugum

+ Frítt wifi á öllu hótelinu

Ekki innifalið

+ Akstur til og frá flugvelli

+ Bjóðum upp á akstur til og frá flugvelli fyrir einstaklinga og allar stærðir af hópum. Einnig getum við boðið upp á bílaleigubíl af öllum stærðum og gerðum.

Ferðaskipulag

Dagur 1

KEFLAVÍK - LISSABON

Flogið í beinu flugi PLAY kl. 14:50 og lent í Lissabon kl. 20:20 að staðartíma.

Dagar 2 til 7

GOLF Á PRAIA DEI REY OG WEST CLIFFS

Njótið þessara frábæru golfvalla í fallegu umhverfi. Gaman er að koma í klúbbhúsið eftir leik og fá sér gott að borða. Hægt er að njóta þess sem hótelið hefur upp á að bjóða í SPA og sundlaugum og gera vel við sig í mat á kvöldin.

Dagur 8

LISSABON- KEFLAVÍK

Flogið er heim í beinu flugi PLAY kl. 21:20 og lent í Keflavík kl. 00:45.

Hafa samband

Brottfarir

Verð á mann

249.000

kr.

20. september 2024

27. september 2024

Verð á mann

249.000

kr.

4. október 2024

11. október 2024

Uppselt!

Verð á mann

249.000

kr.

11. október 2024

18. október 2024

Uppselt!