Cullinan Hotel Belek 5*

+ 5 golfhringir á Aspendos Golf og Olympos Golf

9 dagar

|

8 nætur

·

Verð á mann

469.000

Brottför

Antalya, Tyrkland

Heimkoma

Antalya, Tyrkland

Um ferðina

Cullinan Hotel Belek er 5* eitt allra flottasta hótelið á þessu magnaða golfsvæði.

Hótelið stendur alveg við ströndina í hjarta Belek, sem margir telja besta golfsvæði Evrópu.

Á hótelinu er allt innifalið, bæði á hótelinu og í klúbbhúsinu.

Hótelið státar af 12 fjölbreyttum veitingastöðum sem eru hver öðrum betri.
Við hliðina á hótelinu eru tveir frábærir 18 holu golfvellir, Aspendos Golf og Olympos Golf.

Þar er einnig flott klúbbhús og æfingasvæði þar sem hægt er að æfa upphafshögg, vipp og pútt.

Hótelið er glæsilegt með yfir 600 herbergjum sem öll eru stór og glæsileg.

Hótelsvæðið er heimur út af fyrir sig með mörgum sundlaugum, börum og skemmtunum og góðri SPA aðstöðu sem státar m.a. af Tyrknesku baði og ýmsum meðferðum sem hægt er að fá þar gegn gjaldi.

Hótelið er við Belek ströndina og er einungis í um 30 mínútna aksturfjarlægð frá flugvellinum.

Innifalið

+ Flug með PLAY til og frá Antalya með sköttum

+ 20 kg taska og 23 kg golfsett

+ Gisting í 45 fm tveggja manna superior herbergi með golf- eða sjávarsýn

+ Allur matur og drykkir innifaldir á öllum veitingastöðum hóelsins og í klúbbhúsinu og golfvellinum. Á nokkrum fínni "A la Carte" veitingastöðum hóelsins þarf að greiða 10 EUR og upp í 55 EUR á mann í bókunargjald (shopwcook fyrir max 8 manns).

+ 5 golfhringir á tveimur 18 holu golfvöllum sem eru við hliðina á hótelinu. Hægt að kaupa allt aukagolf í bókunarferlinu.

+ Golfbílar eru nú innifaldir í verðinu

Ekki innifalið

- Allir rástímar eru bókaðir fyrirfrram og tekið er á móti farþegum á flugvellinum af okkar umboðsaðila. Við erum því ekki með sérstakan fararstjóra á staðnum.

Hafa samband