Savoy Palace Golf 5*

+ ótakmarkað golf á Palheiro Golf frá 339.000 kr.

Brottför

Funchal Madeira, Portugal

Heimkoma

Funchal Madeira, Portugal

Um ferðina

VIKULEG FLUG PLAY FRÁ 16. SEPTEMBER

Flogið er til höfuðborgar Madeira, Funchal og er hótelið einungis í um 20 mínútna fjarlægð frá flugvellinum.

Eyjan er aðeins 500 km norður af Tenerife en býður upp á allt öðruvísi landslag.

Savoy Palace er eitt af allra flottustu hótelum Portúgal og er á lista sem eitt af "Leading hotels of the World"

Á hótelinu er úrval veitingastaða og fyrstya flokks garður með mjög góðri sólbaðsaðstöðu.

Cristiano Ronaldo ólst upp á þessari eyju og hefur byggt og bætt marga innviði eyjunnar og einnig fjárfest í nokkrum hótelum.

Madeira hefur upp á margt að bjóða. Fallegt grænt landslag, stórbrotin útsýni og yndisleg þorp, auk þess er loftslagið frábært.

Palheiro golfvöllurinn er mjög fallegur völlur sem er í 500 m hæð og er glæsilegt útsýni til sjávar og yfir Funchal borgina.

Völlurinn er mjög skemmtilegur og mikið um hæðir og er m.a. með nokkrar skemmtilegar par 3 holur þar sem slegið er niður á flöt þannig að gott er að fylgjast með boltanum.

Bóka þarf seinni hring samdægurs og er það háð stöðu vallarins á hverjum tíma.

Endilega sendið okkur skilaboð ef lengd ferðar eða tímasetningarnar henta ekki og við getum gert föst tilboð í allar stærðir af hópum.

Dagskrá fyrir ferðir til og frá golfvelli:

Fyrsta ferð:

Pick-up á hótelinu frá 08:30 og 08:50
Rástími frá 09:30 - 10:00
Heimferð er kl. 15:00

Önnur ferð:

Pick-Up á hótelinu frá 10:00 og 10:30
Rástími frá 11:10 - 11:40
Heimferð er kl. 16:30

Þriðja ferð:

Pick-Up á hótelinu frá 11:30 og 12:00
Rástími frá 12:30 og 13:00
Heimferð er kl 18:00

Ath. ekki er hægt að breyta tímanum á heimferðinni, en leigubíll á hótelið kostar um 25 evrur.
Aksturinn er ekki innifalinn á hátiðisdögum og almennum frídögum á Portúgal.

Innifalið

+ Beint flug með Play til og frá Madeira með tösku og sköttum

+ 20 kg taska og 23 kg golfsett

+ Gisting í tveggja manna herbergi á Savoy Palace 5* með morgunmat

+ Ótakmarkað golf á Palheiro Golf

+ Geymsla á golfsettum í klúbbhúsi Palheiro Golf milli daga

+ Akstur til og frá hóteli á golfvöllinn. Gildir ekki á hátíðadögum og almennum frídögum.

Ekki innifalið

- Boðið verður upp á rútuferðir til og frá flugvelli á hótel gegn hóflegu gjaldi.

- Fararstjórn

- Golfbílar eru ekki innifaldir en við mælum með golfbílum þar sem töluvert landslag er á golfvellinum

- Hægt er að leigja golfbíla fyrirfram fyrir alla vikuna og kostar það 40.000 kr á bíl sem tveir geta deilt

- Gistináttaskattur á Madeira sem er 2 evrur á mann fyrir hverja nótt greiðist á hótelinu

Ferðaskipulag

Dagur 1

KEFLAVÍK - MADEIRA

Flogið í beinu flugi PLAY kl.9:00 og lent í Funchal kl. 14:55 að staðartíma.

Dagar 2 til 7

ÓTAKMERKAÐ GOLF Á PALHEIRO GOLF

Njótið hinnar skemmtilegu borgar Funchal sem er höfuðborg Madeira eftir skemmtilegan golfhring á Palheiro golfvellinum sem gnæfir yfir borginni. Gaman er að koma í klúbbhúsið eftir leik og fá sér gott að borða. Hægt er að njóta þess sem hótelið hefur upp á að bjóða í SPA og sundlaugum og gera vel við sig í mat á kvöldin í Funchal.

Dagur 8

MADEIRA - KEFLAVÍK

Flogið er heim í beinu flugi PLAY kl. 15:55 og lent í Keflavík kl. 20:20.

Hafa samband